Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið.
Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi. Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og vísindi.
Stjórn sjóðsins skipa Lilja Pálmadóttir formaður, Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í Listaháskóla Íslands og Skúli Skúlason prófessor í Háskólanum á Hólum.
Starfsmaður sjóðsins er Sólrún Harðardóttir.